Fyrirlestrasalur
Fyrirlestrasalurinn okkar er tilvalinn fyrir ráðstefnur, fyrirlestra og fjölbreytta viðburði. Salurinn er 443m² með 8,0 metra lofthæð og rúmar 220 manns í sæti. Salurinn er með hallandi gólfi, föstum sætum með felliborðum og tengibrunni í gólfum og undir sætum fyrir tölvur og rafmagn. Salurinn er búinn öllum helsta búnaði sem þarf í viðburði.
- Tölva
- Einfaldur streymisbúnaður
- Skjávarpi og sýningartjald
- Ræðupúlt ásamt púlthljóðnema
- Fastar myndavélar
- 2x þráðlausir hljóðnemar og 2x spangar hljóðnemar