Fara á efnissvæði

Borð í skrifstofukjarna

Fast eða fljótandi borð?

Í skrifstofukjarna Grósku getur þú valið á milli þess að hafa þitt eigið fasta borð í lokaðri skrifstofu eða vera með fljótandi vinnuaðstöðu á svæðinu. 

Verð frá 60.000 kr + vsk /mánuður

Hafðu samband

Hvað er innifalið?

Í Grósku færðu meira en vinnuaðstöðu. Hér er allt til staðar svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir mestu máli, rekstrinum, hugmyndunum og fólkinu. Frá fyrsta kaffibollanum á morgnana til funda, viðburða og daglegrar vinnu er þjónustan hönnuð til að gera vinnudaginn einfaldari, þægilegri og skilvirkari. Líkamsrækt og veitingastaður í húsinu og góð fundar- og viðburðaraðstaða ásamt nægum bílastæðum eru allt hluti af upplifuninni.

Þjónusta í húsinu

Gróska býður upp á fjölbreytta og nútímalega aðstöðu sem styður við vinnudaginn frá upphafi til enda.

Eiriksdottir

Veitingastaðurinn Eiriksdóttir er staðsettur á 1. hæð. Staðurinn býður upp á hágæða hádegismat ásamt því að vera glæsilegur veislusalur. 

World Class

Á jarðhæð er 2000 fermetra heilsurækt rekin af World Class. Þar eru í boði fjölbreyttir hópatímar. Þar má einnig finna heitan og kaldan pott ásamt þurrgufu og infrared gufu. 

Bílastæði

Í bílakjallara Grósku eru 220 bílastæði. Í kringum húsið er einnig fjöldi bílastæða.

Hjólageymsla

Leigutakar hafa aðgengi að hjólageymslu í kjallara hússins. 

Gróskuáhrifin eru raunveruleg

Í Grósku verða hugmyndir að tækifærum og fyrirtæki fá svigrúm til að vaxa og dafna.

“Það er náttúrulega eitthvað í loftinu í Grósku, mörg sprotafyrirtæki og mikil gróska í orðsins fyllstu“

Finnur Pind, forstjóri Treble

“Það er rosalega góð tilfinning að vita að maður getur stækkað og minnkað með litlum fyrirvara og litlum kostnaði . “

Kristín Eva Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Gagarín

“Gróska er alveg gríðarlega sterkt hús fyrir skapandi greinar og hér eru tækifæri. “

Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri MHA

Hafðu samband

Hefur þú áhuga á að verða hluti af Grósku? Sendu okkur skilaboð og við höfum samband eins fljótt og auðið er.

Hvað hefur þú í huga?