Eiríksdóttir
Veitingastaðurinn Eiríksdóttir er staðsettur á jarðhæð hússins. Staðurinn býður upp á hágæða hádegismat ásamt því að vera glæsilegur veislusalur.
Gróska er líkari samfélagi en áfangastað. Í Grósku finnur þú kraftmikið vistkerfi af frumkvöðlum og fagfólki sem hrærist í blöndu af áskorunum tengdum nýsköpun á öllum sviðum verðmætasköpunar. Ef þú ert með hugmynd sem þarf rými til að vaxa er Gróska staðurinn fyrir þig. Hjá okkur færðu tækifæri til að skapa tengslanet við aðra frumkvöðla og bera saman bækur við fólk á þínu sviði.
Gróska býður upp á fjölbreytta og nútímalega aðstöðu sem styður við vinnudaginn frá upphafi til enda.
Sendu okkur skilaboð og við höfum samband eins fljótt og auðið er!